Fara í aðalefni

Frí sending um allt land

YNJA

Persónuverndarstefna

Andlit ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í netversluninni YNJA.

Hvaða upplýsingum er safnað

  • Pöntunarupplýsingar: nafn, netfang, afhendingarupplýsingar og pöntunarsaga.
  • Samskipti sem þú sendir okkur.
  • Netfang ef þú skráir þig á póstlista.
  • Tæknilegar upplýsingar um notkun vefsins, m.a. með vefkökum.

Tilgangur vinnslu

Upplýsingar eru notaðar til að afgreiða pantanir, veita þjónustu, bæta vefinn og – með þínu samþykki – senda markpóst.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu þeirra og eyðingu, auk þess að afturkalla samþykki fyrir markpósti hvenær sem er. Sendu beiðni á ynja@ynja.is.

Vefkökur

Vefurinn notar nauðsynlegar vefkökur til að karfan og vefsvæðið virki rétt. Aðrar vefkökur eru aðeins notaðar með samþykki.

Ef þú velur „Leyfa“ notum við mælingarkóða (pixel) frá Meta Platforms (Facebook og Instagram) til að mæla heimsóknir á vefinn og árangur auglýsinga. Þá eru upplýsingar um vafrann þinn og hvaða síður þú skoðar, t.d. vörur sem þú skoðar eða setur í körfu, sendar til Meta. Við sendum hvorki nafn, netfang né símanúmer. Ef þú velur „Hafna“ er kóðinn ekki hlaðinn. Val þitt er geymt í vafranum í allt að sex mánuði og þú getur breytt því hvenær sem er með tenglinum „Vafrakökustillingar“ neðst á síðunni.

Með samþykki notum við einnig Google Analytics frá Google til að mæla notkun vefsins, t.d. hvaða síður og vörur eru skoðaðar. IP-tölur eru styttar og við sendum hvorki nafn, netfang né símanúmer til Google. Ef þú velur „Hafna“ er Google Analytics ekki hlaðið.